laugardagur, mars 26, 2005


Færeyjar Posted by Hello

fimmtudagur, janúar 27, 2005


iu Posted by Hello

þriðjudagur, október 26, 2004

Flutt

Ég ákvað að flytja bloggið mitt yfir á blogcentral.is og sjá hvort það sé eitthvað betra. Allir kíkja þangað.

"Vopnahlé"

Titillinn á sjálfsagt ekki vel við efnið en mér datt ekkert annað í hug. Var að skila heimaprófinu sem ég er búin að sitja sveitt yfir seinustu vikuna og þarf að fara að byrja á ritgerðinni í Stefnunum sem ég á að skila næsta mánudag. Það er því smá "Vopnahlé" hjá mér núna en það verður stutt.

Ég er alveg að verða búin með Don Kíkóta og ég verð að játa að hún er ekkert svo leiðileg. Strax og ég var búin með fyrstu 150 blaðsíðurnar þá fór hún að vera skemmtileg og núna hlakka ég til að taka mér pásu frá ritgerðar-heimaprófsskrifum og lesa nokkrar blaðsíður.

Kári á afmæli á morgun. Verður 25 ára en sé ekki frammá að hann ætli að taka eftir því. Hann er svo upptekinn við eitthvað verkefni að ef ég spyr hann hvað hann vilji í afmælisgjöf eða hvernig köku ég eigi að baka þá umlar hann bara eitthvað. Ég held þá bara upp á afmælið hans. Baka köku og geri mér glaðan dag :)

Samkvæmt blogginu hans Davíðs eru 59 dagar til jóla. Veitingastaðir eru farnir að auglýsa jólahlaðborðin og ef maður fer í Hagkaup verður maður alveg stressaður afþví ég er ekki búin að skrifa jólakortin, kaupa jólagjafirnar og koll af kolli. Finnst engum öðrum þetta vera svolítið snemmt? Ég meina það er ennþá október! Annars er ég alveg farin að hlakka til jólanna. Matur og pakkar og róleg heit. Ætla að lesa svo margar bækur yfir jólin. Bjartsýn að vanda :)

þriðjudagur, október 19, 2004

Brandari

Ljóska ein gekk inn á bókasafn, arkaði beint að bókasafnsverðinum og hvæsti:
"Ég ætla að bera fram kvörtun!" "Nú yfir hverju" spurði bókasafnsvörðurinn.
"Ég fékk bók hér í síðustu viku og mig langar bara að vita hverjum dettur
eiginlega í hug að kaupa svona rusl og lána síðan saklausu fólki þetta,"
urraði ljóskan. "Þetta var alveg ömurlegt. Það voru allt,allt of margar
sögupersónur, maður gat aldrei kynnst þeim og síðan var gjörsamlega enginn
söguþráður." "Ah" sagði bókasafnsvörðurinn og kinkaði skilningsríkur kolli.
"Það hlýtur að hafa verið þú sen tókst símaskrána okkar."

Þær eru yndislegar þessar ljóskur.

föstudagur, október 15, 2004

Lasin

Sick In Bed




Jæja þá er fröken Halldóra orðin lasin. Er búin að vera lokuð inni í 2 daga og sé ekki frammá að komast út á næstunni. Og ég sem hef svo engan tíma fyrir þetta! Ingibjörg vinkona var svo indæl að smita mig af hálsbólgu og nú er hausinn á mér orðin svo þungur að ég á í fullu fangi með halda honum uppi. Helst væri ég til í að geyma hann á koddanum allan daginn en skólinn leyfir mér það ekki því núna eru allir kennarar að heimta miðsvetrar verkefni og alltof mikið að gera.

Ég byrjaði loksins að lesa Don Kíkóta í morgun. Las hluta af henni þegar ég var í bókmenntasögu fyrir ári en er búin að gleyma helling. Þess vegna þarf ég að lesa hana aftur núna. Hún er alveg jafn leiðileg og mig minnti. ´

Annars hef ég ekkert spes að segja. Lífið takmarkast við að læra, sofa og mæta í skólann. Ekki mikið fréttnæmt þaðan.



miðvikudagur, október 13, 2004

Don Kíkóti

Þetta er svo leiðileg bók. Ég nenni svo innilega ekki að lesa hana!

Fór á djammið á laugadag með Ingibjörgu. Kíktum á Dubliners þar sem við hittum Ástu danmörkubúa og dilluðum okkur þar í nokkra tíma. Síðan var stefnan sett á Hlölla báta þar sem við átum og svo bara heim. Ég var nú bara óvenjuhress á sunnudaginn, ég er svo sem aldrei kát eftir skemmtanir en samt óvenju heil. Ingibjörg var hins vegar alveg ónýt. Ældi og ældi greyið stelpan. Alveg ferlegt þegar fólk fær svona perst ofan í þynkuna :)

Annars er ég búin að standa í ritgerðarsmíðum seinustu daga og því ekki verið mikill tími til að blogga. Skilaði ritgerð í Áströlskum bókmenntum á þriðjudag og svo þarf ég að fara að hugsa út í ritgerðina í Stefnunum sem ég á að skila 1. nóvember. Svo var kennarinn minn í Áströlskum að minna okkur á heimapróf sem við eigum að skila í lok óktóber. Það þarf alltaf allt að gerast í einu. Hvenær á ég eiginlega að hafa tíma til a spila Sims????

Ég var að fá vondar fréttir í morgun. Eina lokaprófið sem ég þarf að hunskast í verður 20. desember! Jólin ónýt. Yfirleitt er ég búin með allt og komin í jólafrí 1. desember en ekki í ár. Ó nei! Núna líður mér eins og ég sé í alvöru háskóla.

Stal þessu af blogginu hennar Ingibjargar:

Reglurnar:
1 - Konan býr alltaf til REGLURNAR.
2 - REGLURNAR geta breyst fyrirvaralaust.
3 - Enginn karl getur mögulega kunnað allar REGLURNAR.
4 - Ef konuna grunar að karlinn kunni allar REGLURNAR verður hún að breyta sumum REGLANNA tafarlaust.
5 - Konan hefur aldrei rangt fyrir sér.
6 - Ef það lítur út fyrir að konan hafi rangt fyrir sér er það vegna svívirðilegs misskilnings vegna einhvers sem karlinn sagði eða gerði vitlaust.
7 - Ef regla nr.6 á við verður karlinn að biðjast afsökunar undir eins fyrir að hafa valdið misskilningnum.
8 - Konan má skipta um skoðun hvenær sem er.
9 - Karlinn má aldrei skipta um skoðun án skriflegs samþykkis konunnar.
10 - Konan hefur rétt á að vera reið eða í uppnámi hvenær sem er.
11 - Karlinn verður alltaf að vera yfirvegaður nema að konan vilji að hann sé reiður eða í uppnámi.
12 - Konan má ekki undir nokkrum kringumstæðum láta karlinn vita hvort hún vilji að hann sé reiður eða í uppnámi.
13 - Karlinn skal ætíð lesa hugsanir konunnar.
14 - Það sem konan meinti er alltaf mikilvægast, ekki endilega það sem hún sagði.
15 - Ef karlinn fer ekki eftir REGLUNUM er það vegna þess að hann er aumingi með hor sem getur ekki tekist á við vandann.
16 - Ef konan er með fyrirtíðaspennu skipta REGLURNAR engu máli og karlinn verður að hlaupa á eftir öllum duttlungum hennar.
17 - Allar tilraunir til að skrá REGLURNAR geta endað með líkamlegum áverkum.
18 - Ef karlinum dettur nokkurn tímann í hug að hann hafi rétt fyrir sér verður hann að muna eftir reglu nr.5.

fimmtudagur, október 07, 2004

Brandarar

Hérna eru tveir ágætir.

Að ljúga eða ljúga ekki!

Dag einn, þegar saumakonan sat og vann á árbakkanum, þá missti hún fingurbjörgina sína útí ána. Hún hrópaði upp yfir sig í örvæntingu og henni til mikillar undurnar birtist Drottinn sjálfur og spurði: Hvers vegna grætur þú ? Saumkonan svaraði að fingurbjörgin hennar hefði fallið í vatnið og hún þyrfti á fingurbjörginni að halda svo hún gæti aðstoða bónda sinn við að afla tekna til heimilisins.
Drottinn hvarf ofan í vatnið og kom til baka með gullfingurbjörg. "Er þetta fingurbjörgin þín?" spurði Drottinn. Saumakonan svaraði neitandi og þá hvarf Drottinn aftur í vatnið og kom upp með demantsfingurbjörg. "Er þetta fingurbjörgin þín?" spurði Drottinn en saumkonan neitaði því. Enn hvarf drottinn ofan í vatnið og kom nú upp með silfurfingurbjörg og spurði hvort þetta væri sú rétta og saumakonan jánkaði því. Drottinn var mjög ánægður með sannsögli konunnar og færði hennir allar fingurbjargirnar þrjár til eignar að launum, og saumkonan hélt glöð heim á leið.
Nokkru síðar þegar saumakonan var á göngu eftir árbakkanum með eiginmanni sínum, datt hann í ána. Þegar hún hrópaði upp yfir sig í örvæntingu, birtist Drottinn enn á ný og spurði hvers vegna hún gréti? "Æi guð, maðurinn minn datt í ána". Guð stakk sér í ána og kom til baka með Mel Gibson. "Er þetta eiginmaður þinn?" spurði hann. "Já" hrópaði saumakonan. Drottinn reiddist. "Þú lýgur" sagði hann. "Æ, fyrirgefðu Drottinn, þetta á sér sínar skýringar. Sjáðu til, ef ég hefði sagt nei við Mel Gibsons, hefðir þú næst komið með Tom Cruise og ef ég hefði sagt nei við honum, þá hefir þú komið með eiginmann minn. Ef ég hefði sagt já við honum þá hefðir þú gefið mér þá alla þrjá og þar sem ég er ekki lengur eins hress og ég var þegar ég var yngri hefði ég aldrei getað sinnt þeim öllum þremur. Þess vegna sagði ég já við Mel Gibson.

Mórall sögunnar: Þegar konur ljúga, er það af heiðvirðum ástæðum og öðrum til heilla. Þetta er okkar skoðun og við stöndum við hana!

Hvað þarf marga í hverju stjörnumerki til að skipta um ljósaperu?

HRÚTUR : Bara einn. Viltu gera mál úr því eða ?

NAUT: Einn, en reyndu að koma nautinu í skilning um að sprungna peran séónýt og að það sé best að skipta um hana og að það eigi síðan að hendahenni.

TVÍBURI: Tveir, en þeir skipta aldrei um peruna-- þeir ræða í sífellu umhver á að skipta um hana, hvernig er best að skipta um hana og af hverjuþarf að skipta um peruna !

KRABBI: Bara einn. En það tekur geðlækni þrjú ár að hjálpa krabbanum aðkomast yfir áfallið og í gegnum sorgarferlið.

LJÓN: Ljón skipta ekki um ljósaperur, en stundum fá umboðsmennirnir þeirraMeyju til þess að gera það fyrir þau á meðan þau eru úti.

MEYJA: Um það bil 1.000.000 með skekkjumörkunum +/- ein milljón.

VOG: Humm, tvær. Eða kannski eina. Nei, annars höfum það tvær. Ef þér ersama ?

SPORÐDREKI: Þessar upplýsingar eru algert leyndarmál og einungis deilt meðþeim Upplýstu í Stjörnusal hinnar Eldgömlu Reglu.

BOGMAÐUR: Sólin skín, dagurinn er ungur, allt lífið er framundan og þú ertinni, með áhyggjur af einhverri eldgamalli sprunginni peru ?

STEINGEIT: Ég eyði ekki tíma mínum í þessa barnalegu brandara.

VATNSBERI: Sko, þú þarft að minnast þess að allt í umhverfi okkar er hreinorka svo að.....

FISKAR: Ljósaperu? Hvaða ljósaperu?